in principio creavit Deus caelum et terram

Sendiboðinn!

19.12.2007 21:32:38 / Bergmann

Batman - Joker

Í þessum spánýja trailer má sjá brot af því hversu vel Heath Leadger ætlar að takast það að leika jókerinn úr batman svo vel, að hann gæti orðið betri en Jack Nicholson.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 00:52:13 / Bergmann

Sendiboðinn rís á ný!!!

Já, ég er kominn aftur að borðinu.

Skyndibiti er þar í brennidepli hjá mér núna, svona þegar fólk hefur engan tíma fyrir hvort annað, né sjálft sig, þarsem jólaösin er að stroka allt annað út. Fór á Burger King um daginn, ekkert merkilegt þar, nennti ekki að standa í 40 min í biðröð á Subway og horfa uppá krakkaskrattan seta 5 grömm af káli á bræðinginn minn. En ég fór að borðinu á Burger King, sá alveg 5 starfsmenn að vinna, eða svo hélt ég, og bara einn kúnna við borðið. Fór ég þá og stóð bakvið konuna, en tók ekki eftir krakkanum sem vildi allt sem var með henni. Það tók konuna hálfa mínutu að ákveða hvort hún vildi beikon eða ost, eða bæði á whopper máltíðina sína. Svo þurfti krakkinn að ákveða hvort hann vildi laukhringi eða franskar með barnamáltíðinni. 

Eftir svona 5 mínutna stand komst ég að borðinu, og pantaði minn whopper með osti og beikon, og "super sæsaði" fyrir 65kall, ekki slæmur díll. En biðin var ekki á enda þegar þangað var komið. Þá átti hann eftir að setja máltíðina hennar saman, klára að steikja naggana fyrir gaurinn þar á undan, og elda matinn minn. Ekki nóg með biðina kostaði maturinn minn rétt yfir þúsundkall. Og þá spyr maður sig, "Hefði ekki verið betra að fara á American Style og bíða sitandi....?"

Málið er bara þannig, að skyndibitamenning Íslendinga er ekki nálægt því sem hún er í skyndibitalandinu mikla BNA... 

Skv www.dictionary.com er skyndibiti(Fast Food) skilgreindur á þennan hátt:

food, as hamburgers, pizza, or fried chicken, that is prepared in quantity by a standardized method and can be dispensed quickly at inexpensive restaurants for eating there or elsewhere.

Súm sé, Matur, þarf ekkert endilega að vera borgarar, pizzur eða hvað eina, sem er matreiddur í magni eftir staðlaðri aðferð og er reiddur fram skjótt á ódýrum veitingastöðum til neyslu þar eða annarstaðar.

Hvað af þessu gildir um íslenska skyndibitamenningu???? 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 00:21:04 / Bergmann

Íslenska útrásin

Nú er fjöldinn allur íslenskra fyrirtækja að markaðsetja á erlendum markaði, og var ég að velta fyrir mér svona, hvernig önnur fyrirtæki myndu fylgja þeim sem þegar eru...þá helst fræg nöfn á klakanum...

Segjum sem svo að Nói Síríus færi á erlendan markað...

Hver myndi ekki vilja kaupa "Noah's Serious - Single Set's" eða Nizza Chocolate(kemur reyndar vel út...) 

Freyja(yrði bara Freyja) - Freyja This, and Freyja That, Freyja Deeps

Þykkvabæjar... Thickytown... Thickytown Paprika Screws

En...hver myndi með heilu viti kaupa "SS Hotdogs"...aðrir en nýnasistar? hvað halda þeir? "Luftwaffe Bacon" hahahaha 

Bara smá vangaveltur...


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 01:58:32 / Bergmann

Whatup?

Seinast voru jól...nú er ekkert...

 

...nema það að ég er á leið til spánar!!! Ég, Höddi, Otti og Siggi erum á leið til spánar að chilla... Ímyndið ykkur það, ég höddi og otti labbandi niður götu... 3x100+ og siggi...

Anyways, ég nenni ekkert að skrifa eitthvað sem vit er í...svo ég deili með ykkur ljóði eftir W. B. Yeats!

 

Aedh Wishes For The Clothes Of Heaven

Had I the heavens' embroidered cloths,
Enwrought with golden and silver light,
The blue and the dim and the dark cloths
Of night and light and the half light,
I would spread the cloths under your feet:
But I, being poor, have only my dreams;
I have spread my dreams under your feet;
Tread softly because you tread on my dreams.

 

GB! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 01:56:10 / Bergmann

Jól....sigh*

Það eru jól....helvítis Jól....afhverju halda þessa ókristilegu hátíð núna???

Það fyllast allir af andkristni á þessum tíma! Verða allir helteknir af veraldlegum gæðum og flippa í öllum búðum!!! Ég bara...it's beyond me! Fólk týnist bara í nautn kringlunnar eða í skítaveðrinu niðrá laugarvegi, hlaupandi búð úr búð í jólastressinu... Ég segi...afnemum gjafirnar!! Höfum jólin að góðum tíma... Verða börnin þá sátt.... Æji Börn. Hverjum datt í hug að eignast þetta? Á jólunum breytast öll börn...góð og slæm...í villt gæludýr... Urra, klóra og bíta og láta öllum illum látum...svo illum að kanar hafa þau í ólum...ekki ósniðugt það! HAHH!! Henda þessum helvítis dýrum í beisli fjandinn hafi það! EN!! Jólin eru ekki alslæm...

MATUR!!! AAAA!! Snilld!!! Konfekt...kökur...KJOT!!! JÓLAÖL!!! MMMM!!!

Ég þarf að hitta 2 menn, einungis til að kyssa þá...

    Manninn sem blandaði fyrst Malti útí Appelsín

    Manninn sem setti hangikjet á flatköku

Þetta er bara of gott til að vera satt...ÉG FATTA ÞETTA EKKI!!!

ÉG SKIL EKKI JÓL!!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 01:13:27 / Bergmann

Passið ykkur!

Ég er brjálaður!

Ég komst að því um daginn að ég hef horft á of mikið Scrubs... Ég tók eftir því um daginn að það var maður, bæði með handfrjálsan búnað inná veitingastað, og með símann sinn í hólfi á beltinu sínu. Bjóst hann virkilega við símtali við matarborðið? Það merkilegt að hann hefði þurft að borða á meðan? Það er nú almenn kurteisi að yfirgefa matarborðið ef síminn hringir...Svo...einsog ég sagði áðan, þá var hann með símann sinn í leðurtösku á beltinu sínu...svona 2 sentimetrum frá vasanum... KOMMON!! Fokkin hálfviti! Ég hef ekkert á móti því að fólk sé með handfrjálsan svo lengi sem það sé mikið að keyra, svosem atvinnu bílstjórar...Leigubílstjórar og rútubílstjórar! Ég veit ekki afhverju en ég hataði þennan gaur...



Úr einu í annað! Passiði ykkur á stelpum! Þarsíðustu helgi var ég í "hvataferð" með vinnunni og ég var bæði Bitinn og kýldur af stelpu...sömu stelpunni...þið vitið öll hver það var!!!

Beware of girl!


Ég fór á myndina "The Last Kiss" með Sigga, Júlla og Hámanninum. Svolítil mistök að fara með 3 gaurum á þessa mynd, því hún var frekar rómantísk...hefði frekar betur spilað að fara með einhverri ungri konu... En hvað á maður að gera... Fyrir alla sem fíluðu húmorinn í Garden State, þá er þessi mynd ágætilega fyndin...



Bergmann!

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 00:01:41 / Bergmann

Klastvandamál!!!

Sökum yfirdrifins klastvanda í herberginu mínu lýsi ég eftir Spliffi, donki og gengju, helst til sölu, og er tilbúinn að kaupa það á kaupverði, eða 9.999 krónur!

ATHUGIÐ ÞETTA ER FÚLASTA ALVARA, EF EINHVER Á SPLIFF DONK OG GENGJU, ÓHREYFT OG NOTANLEGT LÝSI ÉG HÉRMEÐ YFIR ÁHUGA Á KAUPUM!!!

Takk fyrir

(Fyrir þá sem ekki vita er Vídjó Hér )

Vinsamlegast hafið samband í síma 8679079, eða á msn: boyzcout@hotmail.com

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 23:13:19 / Bergmann

....Bækur?

Já, sjetturinn, ég fann námskeiðið sem ég er að fara á!

"NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!!

Allir velkomnir aðeins fyrir karla..
Ath: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið. Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

Fyrri dagur

Hvernig á að fylla ísmolamót?
Skref fyrir skref með glærusýningu

Klósettrúllur vaxa þær á klósettrúlluhaldaranum?
Hringborðsumræður

Munurinn á ruslafötum og gólfi.
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)

Diskar og hnífapör: fer þetta sjálfkrafa í vaskinn eða uppþvottavélina? Pallborðsumræður nokkrir sérfræðingar

Að tapa getunni Að missa fjarstýringuna til makans
Stuðningshópar

Læra að finna hluti Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi
(Opin umræða)

Seinni dagur

Tómar mjólkurfernur: eiga þær að vera í ísskápnum eða í ruslinu
Hópvinna og hlutverkaleikir

Heilsuvakt: það er ekki hættulegt heilsunni að gefa henni blóm
PowerPoint kynning

Sannir karlmenn spyrja til vegar þegar þeir villast
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar

Er erfðafræðilega ómögulegt að sitja þegandi meðan hún leggur bíl?
Ökuhermir

Að búa með fullorðnum: Grundvallarmunur á því að búa með mömmu þinni og maka
Fyrirlestur og hlutverkaleikir

Hvernig á að fara með eiginkonunni í búðir
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni

Að muna mikilvægar dagsetningar og að hringja þegar þér seinkar
Komdu með dagatalið þitt í tímann

Að læra að lifa með því að hafa alltaf rangt fyrir sér
Einstaklingsráðgjöf og samtöl."

Í annað. Ég á alltíeinu ógrynnin öll af skólabókum sem ég hef haldið til haga öll þessi ár og er nú alveg tilbúin að losna við(fyrir MJÖG sanngjarnt verð)

Stæ 303, BrennuNjáls Saga, Upp við Fossa, Mucho Mojo, Sjálfstætt Fólk, Frá lærdómsöld til Raunsæis, Lífsins Tré, Orð af Orði, Rætur og Líffræði(eftir örnólf)

Fer kannski nánar í þessar bækur þegar ég finn fleiri, en endilega hafið samband, Takk.



» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 00:26:46 / Bergmann

Heimsins Besti Brandari!!!

Ég hef ákveðið að deila með ykkur fyndnasta brandara fyrr og síðar...

Afhverju stóð Fíllinn á sykurpúðanum....
.
.
.
.
.
...svo hann dytti ekki í kakóið!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 13:27:08 / Bergmann

Nei!

Damnit maður!!!

Ætlaði að gera ofurfærslu, en svo virka myndirnar ekki!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 17:20:49 / Bergmann

Í formið!

Já, nú þarf kappinn aldeilis að koma sér í form!

Sundið er hætt að vera nóg, svo ég er farinn að æfa körfubolta með ÍG. Ég er að drepast í hnjánum eftir fyrstu æfinguna...en ég flaug á hausinn svona 13 sinnum! Ég var alveg búinn á því eftir æfinguna, og komst að því að ég VERÐ að fara að koma mér í ásættanlegt form...Og að því sögðu skora ég á alla þá sem eru sama sinnis um sjálfa sig, að taka þátt í þessu, og hreyfa sig daglega!

Fátt annað er nýtt í fréttum. En ég komst að því að Scrubs er með hæstu einkun af öllum gamanþáttum(ásamt Arrested Development) á http://www.tv.com . Enda eru þetta bestu þættir sem gerðir hafa verið, og kemur 6. sería í Janúar, og 4. sería er að koma á DVD.

Svona er lífið....ble!

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 00:12:16 / Bergmann

Eyjar, Menninganótt....

Ég fór til eyja með Hrjólfi kl 02:30 aðfaranótt föstudags. Sú ferð var nú eitthvað annað(something else). Ég eyddi fyrsta klukkutímanum að gera ekki neitt, settist svo í vídjóherbergið í svona 2 min, stóð upp, gekk á klósettið og ældi úr mér innyflunum í 20 minutur, lagðist fram í keffiteríu og svaf afgang ferðarinnar. Þegar við komum á bryggjuna í eyjum brutust út næstumþví slagsmál...milli grindvíkings og grindvíkings. Heiðar Bingó og Gunni Haus, eða öllu heldur ætlaði Heiðar að ráðast á Gunna fyrir að reyna við kærustuna hans...eða eitthvða þannig, mér var alveg sama.Fór þá með Eykey, Sigga og Thelmu í yarisinn, aftur... Og fékk far inní dal. Þar dró ég fram tjaldið, og þá kom einhver gella og spurði hvort hún fengi að hringja hjá mér. Ég í mínu sakleysi, og sem alger herramaður, rétti ég fram símann og hélt áfram að tjalda.Eftir það kom hún og sagði "Ef þú lánar mér peysu, skal ég hjálpa þér að tjalda" Auðvitað seildist ég oní dufflepokann og rétti fram flíspeysu, og sagði henni að taka á móti súlunni(vel sagt, ég veit). Eftir að við kláruðum að tjalda, dró ég fram dýnuna mína og byrjaði að dæla í hana, með nýju loftdælunni minni, leit þá við, og þá var gellan HORFIN Í PEYSUNNI MINNI!!!



Ég lét það nú ekkert á mig fá, og vaknaði ferskur á föstudegi, og tók bekkjabíl inní bæ. Ekkert var frásögum færandi þann daginn, nema það að ég gleymdi stígvélunum mínum og húfunni minni í íbúðinni við hliðiná OttaÖnnuSiggaogThelmu. Það var frekar auðvelt fyrir kallinn að redda því, en ég duct-tape-aði byggingaplast við lappirnar á mér, og var í strigaskónum. Það kvöldið var mikið drukkið og ógeðsleg rigning einkenndi kvöldið...



Laugardagskvöld týndi ég símanum mínum og fékk mér nett þunglyndi og var farinn að sofa fyrir 3...



Sunnudagurinn var frábær, en Árni Jonsen tók okkur félagana í túr um Herjólfsstað. Svo fyrir þá grindvíkinga sem ekki vita hver Herjólfur var, þá var það fyrsti maðurinn til að búa í Vestmannaeyjum á eftir Pöpunum. Það kvöldið kláraði ég áfengið mitt, en á þrem kvöldum fór ég með 20 carlsberg 500ml Dósir, 24 carlsberg 330ml glerflöskur, 2 stórar Baccardi Límon flöskur og 1 pela Dooley's. Enda í dag, eru 2 kippur ekki nóg fyrir eitt djamm... Alveg ótrúlegt að vera með svo mikið drykkjuþol...



Svo eyddi ég mánudeginum mestum hjá Sigurbaldri að horfa á sjónvarp(í eyjum) einsog sjá má í síðustu færslu, og þriðjudagsmorgunn var ógeðslega langur, en það fór að rigna á mig um þrjúleytið, og gat ég ekki sofið...



Eyjar 2006 voru æðislegar og vil ég þakka öllum þeim sem tóku þátt í þeirri gleði með mér. Myndirnar eru komnar á Myndir 2...

--------



Föstudaginn fyrir menninganótt var staffadjamm í bænum. Byrjuðum þá hjá Sigrúnu, og þeir sem þátt tóku voru; Ég, Rebekka, Sigrún, Jóhann, Ellen, Lilja og Gaurinn. við fórum niðrí bæ, og tók ég myndavélina með mér. Solid Staffadjamm, einsog þau gerast flest... ;)!



Á menninganótt fór ég í bæjinn með Vidda, Sigga og betu. Hittum þar GummaH, sem náði að draga mig með sér á kjalanesið, veit ekki afhverju!! En stemmarinn í bænum var ágætur, og enduðum við á Pravda, þarsem við drukkum vel, enda voru menn farnir að verða edrú eftir allt labbið í miðbænum. Ég tók myndavélina, en var latur.

"I am the king of Gay Chicken!!"

Fólk verður ekki svalara en ég...

» 15 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 18:17:21 / Bergmann

Bloggað úr Eyjum

Það er að líða á mánudagskvöld og ég sit hér í einhverri íbúð hjá Sigurbaldri að drepa tímann, ég á ekki siglingu heim fyrren 08.15 í fyrramálið, býst ekki við að fara að sofa, en allt draslið mitt er enn uppí dal. Myndavélin mín er drekkfull af myndum, get bara tekið rúmlega 20 til viðbótar eða svo, samt bara búinn að taka 200 og eitthvað myndir. ekkert svo mikið, bara helvítis vídjóin sem taka svona mikið, einsog Flugeldasýningin og smávegis brekkusöngur. Ég hendi þessu öllu saman inn þegar ég kem heim.

Shoutout til allra eyjafara, sé ykkur á klakanum!!!

Bergmann


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 23:41:40 / Bergmann

Muniði eftir Tyggjó Sleikjóunum???

Helgin loksins búin!!! Og maður hélt hún ætlaði engan enda að taka!!!

Gerði ekkert um helgina. Skrapp til Otta í grill. Reyndar eftir vinnu, svo grillið var búið, en skelltum okkur í pottinn og áttum góðar stundir þar. Þá var Siggi án alls efa maður mótsins með hina sígildu línu "Muniði eftir Tyggjó Sleikjóunum???" Svona án gríns, ÉG GRÉT af hlátri. Ég yfirgaf svæðið klukkan 2 en þá var ég búinn að létta af því sem strákarnir vildu heyra :S .

Nú eru fáeinir dagar til eyja og maður að krota á blað það sem gera skal fyrir ferðina, innkaup og gjörðir, og er þetta orðinn ágætasti listi. Ég er reyndar búinn að týna honum...

Annars, þartil næst, (hendi sennilega einni færslu inn fyrir eyjar, hver veit) Bless

Mökkisti svo til að kommenta pussur!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 01:29:27 / Bergmann

Einn svekktur...

Núna rétt í þessu undirstrikuðu SUPERNOVA menn það hversu miklir hálfvitar þeir eru!

Sayira er ennþá inni....

Bergmann kveður



» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
SVAKANAGGAR